Innviðaráðherra staðfesti þann 4. apríl sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í eitt sveitarfélag. Tilkynning þess efnis hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. auglýsingu nr. 405/2022.
Boða skal til sveitarstjórnarkosninga 14. maí 2022 og kjósa sjö fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn hins sameinaða sveitarfélags 29. maí 2022 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar mun gilda fyrir hið nýja sveitarfélag þar til því hefur verið sett ný samþykkt. Heiti hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst sérstaklega en hugmyndasöfnun fyrir val á nafni sveitarfélagsins er hafin og lýkur kl. 16 þann 7. apríl nk.
Sveitarstjórnir sveitarfélaganna kjósa sameiginlega þrjá fulltrúa í yfirkjörstjórn og þrjá til vara. Kjörstjórnir þær sem kosnar voru í upphafi yfirstandandi kjörtímabils, skv. 14. gr. laga nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórnar, skulu vera undirkjörstjórnir í hvoru sveitarfélagi fyrir sig við sveitarstjórnarkosningar.