Laugardaginn 26. mars 2022 verður kosið um sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin hjá sýslumönnum og má greiða atkvæði á skrifstofum sýslumanna á auglýstum afgreiðslutíma á hverjum stað fram að kjördegi.
Þeim sem greiða ætla atkvæði ber að framvísa skilríkjum.
Atkvæðagreiðslan fer þannig fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðil orðið ,,já" ef hann er hlynntur tillögu um sameiningu sveitarfélaganna en ,,nei" ef hann er mótfallinn tillögunni.
Tekið skal fram að samkvæmt lögum nr. 137/2021 um breytingu á kosningalögum nr. 112/2021 (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga), sem tóku gildi 30. desember sl. segir að um framkvæmd atkvæðagreiðslna meðal íbúa sveitarfélaga á grundvelli 38. gr., 107. gr. og 119. gr. sveitarstjórnarlaga fari eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, eftir því sem við getur átt.
Kjósendur sem eru í einangrun eða sóttkví geta haft samband við sýslumann varðandi nánari upplýsingar.
Kjósendur sem kjósa utan kjörfundar hjá sýslumönnum utan Stykkishólms þurfa að koma atkvæðum sjálfir til skila.